Sími: 511-2555 | Hafa samband

thjonusta

Rafvirkjar Reykjavíkur taka að sér verkefni af ýmsum toga, en eftirfarandi eru algengustu verkefni sem við erum að vinna í að staðaldri.

Nýlagnir

Við tökum að okkur margar tegundir nýlagna. Nýlagnir í nýbyggingar hafa verið stór hluti starfssemi okkar og við vinnum þær í sem mestu samráði við viðskiptavini til að sníða raflögnina algjörlega að þörfum viðkomandi.


Byggingar sem við höfum lagt nýlagnir í, eru meðal annars:


  • Sumarbústaðir
  • Einbýlishús og raðhús
  • Skrifstofuhúsnæði
  • Iðnaðarhúsnæði

Verkefnin eru margskonar, en algengast eru:


Almennar raflagnir.

Allt á milli töflu og tengils.


Símalagnir

Við sjáum um allar lagnir til að setja upp stór og smá símkerfi.


Tölvu- og sjónvarpslagnir

Allar lagnir og tengingar á stórum og smáum tölvukerfum og sjónvarpskerfum.

Viðhald

Við tökum einnig að okkur viðhaldsverkefni af öllum gerðu, en þau algengustu eru:


Rafmagns töflur

Við tökum að okkur viðhald á rafmagnstöflum, gömlum sem nýjum. Við ráðleggjum fólki t.d. að skipta út gömlu rafmagnstöflunum með skrúfuðu öryggjunum. Þær eru orðnar úreltar og af þeim gæti stafað hætta.


Raflagnir

Við gerum allt í sambandi við viðhald á hverskyns raflögnum í íbúðarhúsum, iðnaðarhúsum eða hvar sem raflagnir eru. Við yfirförum það gamla og gerum þær ráðstafanir sem við teljum að þurfi að gera til að þær geti talist löglegar og engin hætta stafi af þeim. Þetta er einn liður í okkar starfi sem oft hefur verið vanmetinn því það þarf að endurnýja það gamla, sem hefur allt sinn ákveðna líftíma.


Við gerum tilboð í verk og vinnum þau af samviskusemi og áreiðanleika.